Færsluflokkur: Bloggar

Afi NAUÐGARI

Enn og aftur sönnum við Íslendingar hvað við erum vittlaus. 

Afi nauðgar barnabarni sínu, heldur því fram að hún hafi viljað það og sleppur með hlægilegan dóm á bakinu.  Já greyið er orðinn svo gamall að það er ekki hægt að láta hann dúsa í fangelsi!!! HALLÓ Er ekki allt í lagi með fólk!! 

IF YOU CAN´T DO THE TIME, DON´T DO THE CRIME!!

Ættum að líta frekar á þetta svona: 

Hann gæti átt eftir að lifa til 90 ára(langlífi þekkist á Íslandi) og gæti því lifað 15 ár í viðbót. Hvað er hægt að nauðga mörgum börnum á fimmtán árum!!

Þetta þarf ekki að vera fyrstabrot þar sem þetta er þekkt sem geðsjúkdómur og litlar líkur á að kynferðisafbrotamenn ,,læknist,, af sínum hvötum. Gætu verið fleiri fórnarlömb.

Barnabarnið á eftir að lifa með þessu alla ævi. Ekki 15 mánuði og ekki 15 ár.. ALLA ÆVI !! 

 

Ættum að þakka fyrir að hafa náð honum og læsa hann inni og henda lyklinum!


Klám og öfgar

Þú uppskerð því sem þú sáir.

 Mér dettur þetta í hug þegar ég hugsa til umræðunnar sem hefur verið í gangi um klám. Var sjálf ekkert á móti því að ,,klámstefnan,, yrði haldin hér á landi. Við brutum illilega á þeirra rétti til að koma til landsins og misstum af mikilli landkynningu sem þetta gæti hafa haft í för með sér. Auk þess sem þessi bransi veltir billjörðum.

Ég skammast mín fyrir þessa stjórnmálamenn sem selja sig ódýrt fyrir nokkur atkvæði (trúir þú að þeir/þær hafa aldrei horft á klámmynd eða skoðað klámblöð!!) og þessar femínísta öfga kellingar sem þurfa að fá einn beinstí... Sú landkynning sem þau kölluðu yfir okkur t.d. fasisma, mannréttindabrot og fólk sé dæmt fyrirfram, að ógleymdri skaðabótaskildu sem þau kölluðu yfir okkur, er algert hugsunarleysi! 

 Þessir aðilar ættu að beyta sér fyrir því að skilgreina klám betur í lögum. Það að nauðga eða misþyrma ungum konum og börnum er ekki klám, það er nauðgun. Taka myndir af berum konum í fallegri náttúru er ekkert ljótt. Horfa á fólk í (samþykktum/sjálfviljugum)  samförum er ekkert neikvætt og ljótt. Horfi sjálf á klámmyndir og finnst ekkert að því (góð örvun og fullnægingar í kjölfarið ;).

En nú er mér nóg boðið!  Þessi öfgakennda, heimskulega umræða sem átti sér stað hefur því miður opnað dyr fyrir öfga fólk. Þessi Guðbjörg Hildur er gott dæmi.  Þær manneskjur sem sjá eitthvað KLÁM útúr þessari auglýsingu ættu að leita sér hjálpar!!!! Svo er þessi manneskja að kenna í háskólanum!!!! Fjölmiðlafræðingur ætti að vita mannabest að svona umfjöllun í blöðum gerir ekkert annað en að valda þessari stelpu vanlíðan og leiðinda skotum frá skólafélögum. Hvet foreldra stúlkunnar til að KÆRA hana fyrir þessa klámfengnu lýsingu á mynd dóttur þeirra. Vona að þetta setji ekki svartan blett á fermingardag hennar.

 Það að koma opinberlega fram með svona ógeðslegar lýsingar á saklausri mynd af fallegri stúlku það er misbeyting, nauðgun og ætti að kæra sem slíkt.

 

 


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband