Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

100% íbúðarlán

Kæru stjórnmálamenn viljið þið plís hætta að hjálpa okkur að eignast fyrstu íbúðina. Þið eruð búin að ,,hjálpa,, okkur svo mikið að núna er ekki einu sinni hægt að kaupa íbúðir lengur!

Á nú 3 herb. íbúð sem keypt er á sprengiprís, samt búin að hækka eitthvað eftir það, en mun ekki getað stækkað við mig því það er ekki fyrir nokkurn mann sem er stofna fjölskyldu að fara að borga yfir 30 milljónir fyrir 4. herb. íbúð og borga þá langt yfir 100 þús á mán (bara fyrir íbúðarlánin) til að hafa þak yfir höfuðið!!

Ef þetta er hjálpin þá NEI TAKK!!

Ykkur ber skilda að laga þetta klúður ykkar.

Við eigum eftir að kjósa í 50 ár í viðbót og við ætlum sko að muna þetta!!


Afi NAUÐGARI

Enn og aftur sönnum við Íslendingar hvað við erum vittlaus. 

Afi nauðgar barnabarni sínu, heldur því fram að hún hafi viljað það og sleppur með hlægilegan dóm á bakinu.  Já greyið er orðinn svo gamall að það er ekki hægt að láta hann dúsa í fangelsi!!! HALLÓ Er ekki allt í lagi með fólk!! 

IF YOU CAN´T DO THE TIME, DON´T DO THE CRIME!!

Ættum að líta frekar á þetta svona: 

Hann gæti átt eftir að lifa til 90 ára(langlífi þekkist á Íslandi) og gæti því lifað 15 ár í viðbót. Hvað er hægt að nauðga mörgum börnum á fimmtán árum!!

Þetta þarf ekki að vera fyrstabrot þar sem þetta er þekkt sem geðsjúkdómur og litlar líkur á að kynferðisafbrotamenn ,,læknist,, af sínum hvötum. Gætu verið fleiri fórnarlömb.

Barnabarnið á eftir að lifa með þessu alla ævi. Ekki 15 mánuði og ekki 15 ár.. ALLA ÆVI !! 

 

Ættum að þakka fyrir að hafa náð honum og læsa hann inni og henda lyklinum!


« Fyrri síða

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband